Áhrif veiðarfæra
Aðgát skal höfð þegar átök frá veiðarfærum halla skipinu, t.d. þegar veiðarfæri eru innbyrt með aðstoð vinda eða þegar veiðarfæri festist í botni. Hallavægið sem skapast vegna átaks frá veiðarfærinu hvolfir skipinu þegar það verður stærra en RÉTTIVÆGIÐ.
Fyrir skip 10 m langt og 3 m breitt sem sýnt er á bls. 31 þarf aðeins 2ja tonna átak frá veiðarfærum til að hvolfa því.
Þættir sem auka hallavægið og þar með líkurnar á að skipinu hvolfi eru m.a. eftirfarandi:
- stærri og efnismeiri veiðarfæri
- hár átakspunktur veiðarfæra
- aflmeiri vindur og annar veiðarfærabúnaður
- aukið vélarafl (togveiðiskip)
- slæmt sjólag og festur